Fara beint í efni

Auglýsa hjá okkur

Tæknilýsing auglýsinga

Þrjú föst snið, skýr mörk og alltaf merkt. Þú sendir mynd og hlekk – við sjáum um restina. Allar tölur hér koma beint úr hönnunarkerfi appsins.

Í stuttu máli

  • Allar auglýsingar eru merktar „AUGLÝSING“ og aldrei fleiri en 1 á hverjum skjá.
  • Myndir eru JPG eða PNG, að hámarki 300 KB.
  • Hver auglýsing opnar einn hlekk (https) sem þú velur.
  • Óseld pláss hverfa alveg – engir tómir rammar. Auglýsingar birtast aldrei í byrjunarferli (onboarding) eða í stillingum.

Sniðin þrjú

Snið A: Kort · 3:2

Stærsta sniðið. Fær heila breidd í fréttastraumnum og lítur út eins og frétt – nema merkt.

Hlutföll3:2
Stærð myndar1200×800 px
Öruggt svæði (texti og lógó)1000×660 px
Hornradíus í appi14 px (við klippum)
SkráJPG eða PNG, mest 300 KB

Snið B: Borði · 6:1

Lágur borði sem situr neðst undir töflum.

Hlutföll6:1
Stærð myndar1800×300 px
Öruggt svæði (texti og lógó)1580×215 px
Hornradíus í appi12 px (við klippum)
SkráJPG eða PNG, mest 300 KB

Snið C: Styrktaraðili · lógó + lína

Ein textalína með lógói, t.d. „Leikdagur í boði …“. Hógværasta sniðið og það eina sem ratar í tilkynningar.

Lógó600×200 px (3:1), PNG með gegnsæjum bakgrunni
Útgáfur lógós2 – ein fyrir ljósan og ein fyrir dökkan bakgrunn
TextiMest 32 stafir, t.d. „Leikdagur í boði …“
Hæð í appi48 px
Merking„Í BOÐI“ í stað „AUGLÝSING“

Hvar auglýsingarnar birtast

  • Snið A · Fréttir: first ad, after 2nd story (sold exclusively)
  • Snið A · Fréttir: Í fréttastraumi: eftir aðra frétt og síðan eftir hverja áttundu.
  • Snið B · Leikur · Leikmenn: Undir leikmannatölfræði (box score) á leikjasíðu.
  • Snið B · Staðan: Undir stöðutöflu.

Pláss sem bætast við síðar:

  • Snið A · Mitt lið: Á eftir fréttum af liðinu á Mitt lið.
  • Snið B · Leikir: Á milli karla- og kvennadeildar á Leikir.
  • Snið C · Leikur: Styrktarlína undir skortöflu á leikjasíðu.
  • Snið C · Push: Síðasta lína í leikdagstilkynningu.

Reglur

  • Hver auglýsing er alltaf merkt „AUGLÝSING“ fyrir ofan myndina.
  • Að hámarki 1 auglýsing á hverjum skjá.
  • Aldrei auglýsingar í byrjunarferli (onboarding) eða í stillingum.
  • Engin hreyfimynd, hljóð eða sjálfvirk spilun.
  • Við áskiljum okkur rétt til að hafna efni sem hæfir ekki miðlinum.
  • Þú færð tölur um birtingar og smelli fyrir hverja auglýsingu. Mælingar nota eingöngu nafnlaust tækjaauðkenni – engir þriðju aðilar.

Að senda efni

Sendu myndina (eða lógó og textalínu fyrir snið C), hlekkinn sem auglýsingin á að opna og tímabilið sem hún á að birtast á auglysingar@3stig.is. Við staðfestum móttöku og settum auglýsinguna í loftið innan tveggja virkra daga.

Verðskrá fæst með því að senda póst á auglysingar@3stig.is.