Fara beint í efni
Komið á App Store

Allur íslenskur körfubolti í vasanum

Lifandi tölur, staðan, tölfræðin, fréttir frá öllum miðlum og hlaðvörpin. Veldu þitt lið og 3stig lætur þig vita á leikdegi.

App StoreAndroid – væntanlegt
  • Ókeypis
  • Engin skráning
  • Allar deildir KKÍ
  • Íslenskt
  1. 01 · Fréttir

    Allar fréttirnar. Einn fréttastraumur

    mbl.is, RÚV, KKÍ og Karfan á einum stað, merkt eftir miðli. Leikir dagsins efst og fréttin opnast hjá þeim sem skrifaði hana.

    • Nýjar fréttir á tveggja mínútna fresti
    • Leikir dagsins efst í straumnum
  2. 02 · Leikir

    Allir leikir. Allir díteilarnir

    Úrslit og leikir dagsins í öllum deildum. Einn smellur og þú sérð leikhlutana, tölfræði hvers leikmanns, dómarana og höllina.

    • Bónus deildin, 1. deildin og bikarinn
    • Dagatal yfir allt tímabilið
  3. 03 · Staðan

    Lifandi stöðutöflur og ítarlegar upplýsingar

    Staðan í hverri deild með stigamun og úrslitakeppnislínu, og topplistar tímabilsins fyrir leikmenn og lið.

    • Stig, fráköst, stoðsendingar og skotnýting
    • Að meðaltali eða samtals
  4. 04 · Mitt lið

    Fylgstu með þínu liði eða liðum

    Niðurtalning í næsta leik, síðustu úrslit og fréttir af liðinu þínu. Fylgdu eins mörgum liðum og þú vilt.

    • Karla- og kvennalið
    • Tilkynningar bara fyrir þín lið
  5. 05 · Hlaðvörp

    Hlaðvörpin. Beint í appinu

    Íslensku körfuboltahlaðvörpin í innbyggðum spilara. Hraði, svefnteljari og röð, og appið man hvar þú hættir.

    • Heldur áfram á læstum skjá
    • Nýir þættir birtast sjálfkrafa

Tilkynningar

Þrjár á leikdegi. Ekkert annað.

Bara fyrir liðin sem þú fylgir, og þú stillir hverja og eina af eða á. Engar aukatilkynningar, ekkert „við söknum þín“.

  1. 09:00Morgunn leikdags

    Leikdagur: Valur – KR09:00

    Í dag kl. 19:15 · N1-höllin á Hlíðarenda

  2. 19:00Korter í leik

    Valur – KR hefst kl. 19:1519:00

    N1-höllin á Hlíðarenda · Fylgstu með í beinni í 3stig

  3. 21:05Lokaflaut

    Lokatölur: Valur 88–94 KR21:05

    Tölfræði og nánari upplýsingar má finna í 3stig.

Næsti leikdagur
byrjar hér.

Sæktu 3stig, veldu liðið þitt og fáðu fyrstu tilkynninguna á næsta leikdegi.

App StoreAndroid – væntanlegt

Spurt og svarað

Gott að vita

Kostar appið eitthvað?

Nei. 3stig er ókeypis og fjármagnað með merktum auglýsingum frá íslenskum fyrirtækjum.

Þarf ég að skrá mig?

Nei. Það er enginn aðgangur og ekkert lykilorð. Liðin sem þú velur og stillingar tilkynninga eru vistaðar á nafnlausu auðkenni tækisins.

Hvaða keppnir eru í appinu?

Bónus deild karla og kvenna, 1. deild karla og kvenna, VÍS bikarinn og Meistarakeppnin.

Hvaðan koma gögnin?

Leikir, tölur og tölfræði koma úr opinberum leikjakerfum KKÍ. Fréttir koma frá miðlunum sjálfum og opnast hjá þeim. Staðan er reiknuð úr úrslitunum.

Hvenær kemur Android-útgáfan?

Hún er í vinnslu. Sendu okkur línu á hallo@3stig.is og við látum þig vita.

Fannstu villu eða ertu með hugmynd?

Endilega láttu okkur vita á hallo@3stig.is. Segðu hvað gerðist, á hvaða skjá og hvaða síma þú notar, og skjáskot hjálpar mikið. Við lesum allt.

Auglýstu hjá okkur

Við seljum auglýsingar beint, án milliliða. Þrjú föst snið, skýr mörk, alltaf merkt. Þú sendir mynd – við sjáum um restina.

  • Snið A: Kort · 3:2

    1200×800 px

    Í fréttastraumi. Stærsta sniðið.

  • Snið B: Borði · 6:1

    1800×300 px

    Á Stöðunni og leikjasíðu.

  • Snið C: Styrktaraðili · lógó

    Lógó 600×200 px

    Á ræsiskjá appsins.